Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

167. fundur 19. nóvember 2026 kl. 16:15 - 17:45 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Kristinn Kristjánsson aðalm.
  • Kristín Margrét Halldórsdóttir aðalm.
  • Jón K Ólafsson aðalm.
  • Rut Jónsdóttir aðalm.
  • Viktor Freyr Elísson varam.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs
Í upphafi fundar bar formaður upp tillögu þess efnis að taka til afgreiðslu mál 2609044 - Gjaldskrár, liður 6. Breytingin er samþykkt samhljóða.

1.Reglur um tónskólanám utan lögheimilissveitarfélags

Málsnúmer 2611041Vakta málsnúmer

Fyrir liggja uppfærðar reglur um tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Lögð voru fram drög að endurskoðuðum reglum Fjallabyggðar um tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags.

Lagt er til að einfalda skilyrði um fyrra tónlistarnám og fella brott kröfur um fullt tónlistarnám, að nám við hæfi standi ekki til boða í heimabyggð og að námið sé metið til eininga í framhaldsskóla.

Umsóknir berist sviðsstjóra velferðarsviðs fyrir 1. ágúst vegna haustannar og 1. desember vegna vorannar. Með umsókn fylgi staðfesting á skólavist og upplýsingar um umfang náms, kennslukostnað og fyrri námsframvindu.

Við afgreiðslu verði kannað hvort námið falli undir ákvæði um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Greiðsluþátttaka miðast við kennslukostnað og tekur ekki til skólagjalda. Samþykki um greiðsluþátttöku verði skriflegt og tilgreini fjárhæð og tímabil.

Reglurnar verði endurskoðaðar að minnsta kosti einu sinni á hverju kjörtímabili.

2.Samstarf Grunnskóla Fjallabyggðar og MTR

Málsnúmer 2611042Vakta málsnúmer

Minnisblöð er varða flutning 5. bekkjar að Tjarnarstíg og samstarf vegna 10. bekkjar við MTR.
Samþykkt
Nefndarmenn hvetja til þess að áfram verði unnið að sameiningu miðstigsins með tilfærslu 5. bekkjar að Tjarnarstíg. Partur af vinnunni verður að funda með foreldrum/forráðamönnum, nemendum, kennurum og starfsfólki. Nefndarmenn verða upplýstir reglulega um vinnu hópsins.

3.Fjárhagsstaða málaflokka fræðslu- og frístundanefndar

Málsnúmer 2611054Vakta málsnúmer

Staða málaflokka fræðslu- og frístundanefndar 18.11.2026
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn óska eftir að mánaðarlega verði lögð fram staða þeirra málaflokka sem falla undir nefndina og áætlun ársins til samanburðar.

4.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2611043Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál
Samþykkt
Sviðsstjóra falið að svara erindinu. Bókað í trúnaðarbók.

5.Útboð skóla- og almenningsakstur

Málsnúmer 2611044Vakta málsnúmer

Fyrirspurn vegna skóla- og almenningssamgangna.
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn þakka Vitvélum erindið og sviðsstjóra falið að svara erindinu.

6.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2609044Vakta málsnúmer

Gjaldskrá leikskólans 2027
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar tekur undir mikilvægi þess að leikskólagjöld séu hófleg og að sveitarfélagið sé eftirsóknarverður búsetukostur fyrir barnafjölskyldur.

Nefndin samþykkir að nýta fyrsta starfsár sitt til heildstæðrar endurskoðunar á gjaldskrá leikskóla með það að markmiði að lækka gjöldin og draga úr fjárhagslegri byrði barnafjölskyldna.

Jafnframt leggur nefndin til við bæjarstjórn að fyrirhuguð 2,5% hækkun leikskólagjalda fyrir árið 2027 verði afturkölluð og að tillögur að endurskoðaðri gjaldskrá liggi fyrir eigi síðar en vorið 2027.

Fundi slitið - kl. 17:45.