Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

86. fundur 25. maí 2020 kl. 16:30 - 17:10 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Hólmar Hákon Óðinsson varaformaður I lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir aðalmaður, I lista
  • Tómas Atli Einarsson varamaður, D lista
  • Þorgeir Bjarnason varamaður, H lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála
Gauti Már Rúnarsson boðaði forföll og Tómas A. Einarsson sat fundinn í hans stað.
Diljá Helgadóttir boðaði forföll. Þorgeir Bjarnason sat fundinn í hennar stað.

1.Erindi v. sumarleyfis / lokun leikskólans

Málsnúmer 2005007Vakta málsnúmer

Á 85. fundi fræðslu- og frístundanefndar var tekið fyrir erindi Sunnu Eirar Haraldsdóttur hjúkrunardeildarstjóra Hornbrekku og móður leikskólabarns er varðar sumarleyfi leikskólans. Erindinu var vísað til umsagnar leikskólastjóra og deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála. Tekin fyrir umsögn áðurgreindra aðila. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir að fyrir sumarið 2020 verði til reynslu gefin undanþága frá þeirri meginreglu að taka fjórðu sumarleyfisviku leikskólabarna síðustu viku fyrir sumarlokun eða fyrstu viku á eftir, en þó þannig að hún verði tekin innan tímarammans 1. júní 2020 - 31. ágúst 2020.
Varðandi að sumarlokun leikskólans sé ætíð á sama tíma árlega leggur nefndin til að gerð verði könnun á æskilegum lokunartíma leikskólans meðal foreldra leikskólabarna, starfsfólks leikskólans og forsvarsmanna stærstu fyrirtækja og stofnana í Fjallabyggð. Niðurstöður skulu liggja fyrir 1. október nk.

Fundi slitið - kl. 17:10.