Félagsmálanefnd Fjallabyggðar

116. fundur 07. febrúar 2019 kl. 16:30 - 18:00 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Ingvar Ágúst Guðmundsson varaformaður, D lista
  • Díana Lind Arnarsdóttir aðalmaður, D lista
  • Hrafnhildur Ýr Denke Vilbertsdóttir formaður I lista
  • Særún Hlín Laufeyjardóttir aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson félagsmálastjóri

1.Starfsáætlun félagsmálanefndar 2019

Málsnúmer 1902025Vakta málsnúmer

Umræður um fundardaga félagsmálanefndar næstu mánuði og helstu verkefni nefndarinnar sem fram undan eru. Nefndin ákveður að heimsækja starfstöðvar félagsþjónustunnar á næstu vikum. Einnig samþykkir nefndin að óska eftir sameiginlegum fundi með félagsmálaráði Dalvíkurbyggðar til að ræða og fara yfir sameiginleg verkefni.

2.Uppfærð grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar 2019

Málsnúmer 1902026Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar verði kr. 153.552 og taki gildi frá og með 1. mars næstkomandi.

3.Reglur um heimaþjónustu Fjallabyggðar

Málsnúmer 1901058Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd fór yfir drög að nýjum reglum um heimaþjónustu í Fjallabyggð. Málið verður tekið fyrir að nýju á næsta fundi nefndarinnar.

4.Reglum um úthlutun íbúða aldraðra í Skálarhlíð

Málsnúmer 1902028Vakta málsnúmer

Deildarstjóri lagði fram drög að sérstökum reglum um úthlutun íbúða í Skálarhlíð. Málið verður tekið aftur fyrir á næsta fundi nefndarinnar.

5.Mat á þörf og forgangsröðun biðlista eftir íbúð í Skálarhlíð

Málsnúmer 1902033Vakta málsnúmer

Deildarstjóri lagði fram matslista fyrir forgangsröðun biðlista eftir íbúð í Skálarhlíð. Matslistinn tekur á þáttum sem snúa að heilsufari, aldri, félagslegum aðstæðum og núverandi húsnæðisaðstæðum umsækjenda. Félagsmálanefnd samþykkir að matslistinn verði tekinn í notkun við forgangsröðun biðlista eftir íbúð í Skálarhlíð.

6.Samningur um þjónustu félagsráðgjafa

Málsnúmer 1902024Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi við Þorleif Kr. Níelsson, félagsráðgjafa um sérfræðiþjónustu fyrir félagsþjónustu Fjallabyggðar. Samningurinn gildir frá 1. mars 2019 til 31. desember 2019. Félagsmálanefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 18:00.