Bæjarráð Fjallabyggðar

941. fundur 25. nóvember 2026 kl. 08:45 - 10:45 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Hafdís Huld Björnsdóttir bæjarstjóri
  • Þórir Hákonarson skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson skrifstofustjóri

1.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2611058Vakta málsnúmer

Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar.
Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar.

2.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2609044Vakta málsnúmer

Gjaldskrár Fjallabyggðar fyrir árið 2027 hafa verið teknar til umfjöllunar í nefndum en áður var búið að samþykkja almenna hækkun á gjaldskrám um 2,5% á milli áranna 2026-2027 í samræmi við samþykkt sambandsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga í haust.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Bæjarráð þakkar nefndum fyrir yfirferð fyrirliggjandi gjaldskráa og vísar þeim til 2. umræðu fjárhagsáætlunar.

3.Fundartími Bæjarráðs Fjallabyggðar

Málsnúmer 2106049Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga frá meirihluta bæjarráðs um að fundartími verði framvegis kl 15:00 á fimmtudögum.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að reglulegur fundartími bæjarráðs verði framvegis á fimmtudögum kl. 15:00 og tekur breytingin gildi um áramót.

4.Framlög til stjórnmálasamtaka 2026

Málsnúmer 2611051Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga bæjarstjóra yfir greiðslur og skiptingu framlags til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2026 í samræmi við ákvæði 5.gr. laga nr. 162/2006. Samtals er lagt til kr. 509.971 framlag sem skiptist á milli stjórnmálasamtaka í Fjallabyggð í samræmi við atkvæðafjölda í síðustu sveitarstjórnarkosningum eins og lög gera ráð fyrir. Gert er ráð fyrir greiðslunni í fjárhagsáætlun líðandi árs.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um framlög til stjórnmálasamtaka.

Sjálfstæðisflokkurinn 35,7% kr. 182.060-
H-listinn 33,5% kr. 170.840-
Jafnaðarmannaflokkur Fjallabyggðar og óháðra 30,8% kr. 157.071-

5.Rekstur knattspyrnuvalla 2027

Málsnúmer 2611069Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal í kjölfar fundar bæjarstjóra og skrifstofustjóra með KF, ásamt samantekt frá KF um rekstur og umhirðu vallarins.
Samþykkt
Sveitarfélagið hóf vegferð að byggja upp knattspyrnuvöllinn í Ólafsfirði fyrir tveimur árum og hefur það gefist vel. Verkinu er ekki lokið og telur bæjarráð mikilvægt að áfram verði haldið á sömu vegferð og að ekki komist hnökrar á uppbygginguna. Bæjarráð leggur til að gengið verði til samninga við Fjallgarða ehf. um áframhaldandi uppbyggingu vallarins næstu þrjú árin.
Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að eiga samtal við KF um önnur verkefni sem knattspyrnufélagið gæti tekið að sér að sinna gegn gjaldi.

Samþykkt með tveimur atkvæðum fulltrúa H-lista og S-lista. Bæjarráðsfulltrúi D-lista kýs gegn tillögunni og óskar eftir eftirfarandi bókun:

"Fulltrúi D-lista fagnar því að nú liggi fyrir vinnuskjal og samantekt KF. Gögnin skýra áhuga félagsins og hugmyndir þess, en þar er hvorki sett fram verð né fullbúin áætlun um mönnun, búnað og ábyrgð. Enn vantar samanburð á sama verkumfangi og heildarkostnaði, ásamt rökstuddu mati bæjarstjóra á valkostum og innkaupaleið."

6.Trúnaðarmál - fasteignir 2026

Málsnúmer 2610017Vakta málsnúmer

Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar.
Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar

7.Beiðni um lóðarleigusamning vegna Skeggjabrekkuvallar

Málsnúmer 2611053Vakta málsnúmer

Golfklúbbur Fjallabyggðar óskar eftir að gerður verði lóðarleigusamningur um landsvæðið sem golfvöllurinn stendur á.
Vísað til nefndar
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið vísar því til afgreiðslu hjá Skipulags- og umhverfisnefnd.

8.Styrkumsókn vegna jólaaðstoðar

Málsnúmer 2611059Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Velferðarsjóði Rauða krossins á Eyjafjarðarsvæðinu þar sem óskað er eftir stuðningi við jólaaðstoð Velferðarsjóðsins.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að veita kr. 100.000.- til verkefnisins.

9.Jólatónleikar - umsókn um styrk

Málsnúmer 2611060Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Ólöfu Sigursveinsdóttur fyrir hönd jólatónleika sem áætlað er að halda í Ólafsfjarðarkirkju þar sem óskað er eftir fjárstuðningi við tónleikana að upphæð kr. 394.000.
Synjað
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu að þessu sinni.

10.Nefndasvið Alþingis - Mál til umsagnar 2026

Málsnúmer 2601003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá nefnda - og greiningarsviði Alþingis þar sem eftirfarandi mál eru send til umsagnar:
313.mál Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041
286.mál Stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031
285.mál Aðgangur barna að samfélagsmálum
Lagt fram til kynningar
Bæjarstjóra falið fara yfir þau mál sem eru til umsagnar og tryggja að hagsmunir Fjallabyggðar verði tryggðir með umsögn ef málin eru þess eðlis og snúa að sveitarfélaginu.

11.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal bæjarstjóra frá 79. og 80. stöðufundi með skipulags - og framkvæmdasviði.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar bæjarstjóra fyrir framlagt vinnuskjal.

12.Fundargerðir - Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar 2022 - 2026

Málsnúmer 2304029Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð 20. fundar svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

13.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Fundi slitið - kl. 10:45.