Sumarstörf, umsóknarfrestur til 1. apríl

Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur um sumarstörf hjá Fjallabyggð er að renna út og er miðvikudagurinn 1. apríl síðasti dagur til að skila inn umsókn. Eftirtalin störf eru laus til umsóknar:

Vinnuskóli Fjallabyggðar auglýsir eftir sex flokksstjórum til að starfa við skólann. Starfstímabil er frá 1. júní til 7. ágúst. Umsækjendur þurfa að vera 20 ára og eldri. Flokksstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi, ástundun og góðri umgengni starfsmanna. Flokksstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skuli að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og tækjum.

Sláttugengi - Þjónustumiðstöð auglýsir eftir starfsmönnum til að sinna slætti og umhirðu á opnum svæðum. Starfstímabil er frá 1. júní til 31. ágúst. Umsækjendur þurfa að vera 16 ára (f.1999) og eldri.

Starfsmaður í skógrækt. Auglýst er eftir starfsmanni til að sinna viðhaldsverkefnum í Skógrækt Siglufjarðar. Starfstímabil er frá 1. júní - 31. ágúst. Reynsla af skógræktarvinnu æskileg.

Þjónustumiðstöð Fjallabyggðar auglýsir eftir starfsmönnum í almenna verkamannavinnu. Helstu verkefni; málun gangbrauta og annarra merkinga, hreinsun leiksvæða. Starfstímabil er frá 1. júní - 31. ágúst.

Vélamaður. Auglýst er eftir vélamanni til að vinna við garðslátt og umhirðu á opnum svæðum. Umsækjendur þurfa að vera 20 ára og eldri og hafa dráttarvélaréttindi. Starfstímabil er frá 1. júní - 31. ágúst.

Yfirmaður umhverfisverkefna. Auglýst er eftir yfirmanni umhverfisverkefna. Hann skipuleggur og stýrir öllum umhverfisverkefnum í Fjallabyggð. Hefur umsjón með sláttugengi Fjallabyggðar. Starfstímabil er frá 15. maí - 15. september. Leitað er eftir einstaklingi sem er 25 ára eða eldri, skipulagður og sjálfstæður í starfi. Reynsla af garðyrkju og öðrum verkefnum á opnum svæðum æskileg.

Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar vantar þrjá starfsmenn á Siglufirði (100% / 90% / 80%) og tvo starfsmenn í Ólafsfirði (100% / 90%). Starfstímabil er frá 1. júní - 20. ágúst. Leitað er að einstak-lingum 20 ára og eldri sem hafa þekkingu í skyndihjálp og standast kröfur sem gerðar eru til sundvarða sem felast í því að taka sundpróf samkvæmt reglugerð um öryggi á sundstöðum.

Bókasafn og upplýsingamiðstöð í Ólafsfirði auglýsir eftir starfsmanni frá 7. júní - 31. ágúst. Leitað er að einstaklingi með ríka þjónustulund, gott viðmót og ástríðu fyrir því að veita ferðamönnum upplýsingar og gera dvöl þeirra í Fjallabyggð sem ánægjulegasta. Starfsmaður sinnir einnig störfum bókavarðar og öðrum tilfallandi verkefnum. Eingöngu er um helgarvinnu að ræða. Starfsmaður gæti þó þurft að leysa af á virkum dögum. Góð tungumálakunnátta skilyrði.

Umsóknarfrestur allra starfa er til og með 1. apríl.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar eða á heimasíðu bæjarfélagsins, www.fjallabyggd.is/ibuar/umsoknir