Góðar vinkonur
Það var líf og fjör í Fjallabyggð í gær þegar börn og ungmenni klæddu sig upp í hina ýmsu búninga í tilefni af Öskudeginum. Samkvæmt hefð gengu börnin í verslanir og fyrirtæki og sungu fyrir starfsfólk í von um að fá góðgæti fyrir. Um miðjan dag var svo Öskudagsskemmtun í íþróttahúsinu í Ólafsfirði þar sem sleginn var kötturinn úr tunnunni, sett var upp leikjabraut og fleira skemmtilegt. Það var starfsfólk og ungmenni úr félagsmiðstöðinni Neon sem sá um framkvæmd á skemmtuninni. Það var nóg að gera á bæjarskrifstofunni í því að hlýða á söng og hér má sjá nokkrar myndir frá þeim heimsóknum ásamt myndum úr íþróttahúsinu í Ólafsfirði.
Fullt af "alls konar" búningum og furðuverum
Kötturinn sleginn úr tunnunni