Háskólalestin - Vísindaveisla í Tjarnarborg Ólafsfirði 18. maí

Áhöfn Háskólalestarinnar slær upp Vísindaveislu í Menningarhúsinu Tjarnarborg laugardaginn 18. maí nk. frá kl. 12:00-16:00.  Vísindaveislan er opin öllum og góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna - börn og fullorðna.

Vísindaveislan er fjölbreytt og lifandi, þar sem áhersla er lögð á fjör og fræði, skemmtun og fræðslugildi. Gestum gefst færi á að sjá frábærar tilraunir, fylgjast með mælingum og pælingum eðlisfræðinga og kynnast margvíslegum undrum jarðar hjá jarðfræðingunum og margt margt fleira.

Allir eru hjartanlega velkomnir - enginn aðgangseyrir.