31.03.2023
Í átjánda sinn auglýsa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair nú eftir umsóknum um Eyrarrósina. Viðurkenningin er veitt framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni sem hefur fest sig í sessi. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 miðvikudaginn 13. apríl.
Lesa meira
31.03.2023
Fjallabyggð auglýsir fjöldann allan af spennandi og krefjandi sumarstörfum laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 1. maí nk.
Fjölbreytt störf eru í boði.
Lesa meira
30.03.2023
Alþingi hefur ályktað að fela innviðaráðherra að fela Vegagerðinni að ljúka nauðsynlegum rannsóknum vegna gerðar vegganga fyrir þjóðveg milli Siglufjarðar og Fljóta, hanna slíkt mannvirki og leggja mat á kostnað við gerð þess. Ráðherra leggi skýrslu með niðurstöðum rannsókna og kostnaðarmati fyrir Alþingi fyrir árslok 2023.
Lesa meira
30.03.2023
Páskafrí hefst í Grunnskóla Fjallabyggðar að loknum skóladegi á morgun föstudaginn 31. mars. Fyrsti skóladagur eftir páska er þriðjudaginn 11. apríl nk.
Lesa meira
30.03.2023
Íbúakosning lýðræðisverkefnisins Fegrum Fjallabyggð fór fram dagana 13. – 26. mars. Alls tóku 356 manns þátt í kosningunni eða 21,5% íbúa 15 ára og eldri. Fimm verkefni hlutu kosningu og raðast á þær 20 milljónir sem úthlutað var til verkefnisins. Mörg áhugaverð verkefni sem ekki hlutu kosningu munu samt sem áður fá verðskuldaða umfjöllun í stjórnkerfi bæjarins.
Lesa meira
29.03.2023
Hátindi 60+ nýsköpunar-og þróunarverkefni í þjónustu við íbúa Fjallabyggðar 60 ára og eldri var formlega ýtt úr vör í Tjarnarborg í dag. Fjölmenni mætti á opnunina sem tókst í alla staði mjög vel.
Lesa meira
29.03.2023
Regus opnaði nýjan og glæsilegan skrifstofukjarna, við hátíðlega athöfn á Siglufirði, í gær, 28. mars.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra opnaði kjarnann við fjölmenni.
Regus býður nú upp á 24 starfsstöðvar á Siglufirði, bæði í opnum og lokuðum rýmum. Það mun nýtast bæjarbúum og gestum og þegar hafa fyrirtæki tryggt sér rými á skrifstofukjarnanum á Siglufirði.
Lesa meira
29.03.2023
Þrettán verkefni hafa verið valin til þátttöku á Fjárfestahátíð Norðanáttar sem fer fram á Siglufirði í dag þann 29. mars 2023
Þetta er í þriðja sinn sem Norðanátt stendur að hátíðinni en í ár var öllum landshlutum boðið að taka þátt af öllu landinu.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra setti hátíðina en fjölmenni sótti hátíðina og færri komust að en vildu.
Lesa meira
29.03.2023
Fjallabyggð ásamt samstarfsaðilum ýta úr vör metnaðarfullu nýsköpunar- og þróunarverkefni sem snýr að þjónustu við íbúa sveitarfélagsins 60 ára og eldri. Súpufundur verður haldinn í menningarhúsinu Tjarnaborg í Ólafsfirði miðvikudaginn 29. mars kl 12:00.
Akstur verður frá Ráðhúsinu Siglufirði kl: 11:30 - Brottför frá Tjarnaborg 13:10
Lesa meira
28.03.2023
Málefni ráðuneytisins eiga við um land allt og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, staðsetur skrifstofu sína víðsvegar um landið á kjörtímabilinu. Nú er komið að Fjallabyggð.
Skrifstofa ráðherra verður þannig staðsett á Siglufirði í dag og á miðvikudag. Á hverri starfsstöð eru öll áhugasöm velkomin á opna viðtalsíma. Í þetta skiptið fara þeim fram milli kl. 15 og 16 í Regus á Siglufirði.
Lesa meira