01.11.2023
Loka þarf fyrir kalt vatn á Hlíðarvegi sunnan við gatnamót Þormóðsgötu og einnig í Kirkjustíg. Viðgerð fer fram milli kl. 10:00 – 12:00 í dag 1. nóvember 2023.
Lesa meira
01.11.2023
Lærðu að búa til þín eigin smyrsl og krem, einnig að búa til baðsalt og skrúbb.
Lesa meira
31.10.2023
Í dag 31. október var gerður verksamningur milli Fjallabyggðar og Íslenska Gámafélagsins um sorphirðu í Fjallabyggð frá 1. febrúar 2024 til þriggja ára samkvæmt ákvæðum útboðslýsingar.
Lesa meira
31.10.2023
Undanfarin ár hefur Fjallabyggð gefið út viðburðadagatal fyrir jólin þar sem m.a. er birt dagskrá hinna ýmsu þjónustuaðila, félaga, safna og setra, skóla, kirkjunnar og fleira.
Ef þú vilt koma þínum viðburði til skila til íbúa með þátttöku í dagatalinu þarftu að senda upplýsingar um hann til markaðs- og menningarfulltrúa á netfangið lindalea@fjallabyggd.is fyrir 23. nóvember nk.
Birting í dagatalinu er þér að kostnaðarlausu og verður það m.a. birt á vef Fjallabyggðar.
Lesa meira
30.10.2023
Hunda- og kattaeigendum er skylt að mæta með hunda og ketti sína til hreinsunar og er það innifalið í leyfisgjaldi sem þarf að vera greitt fyrir hreinsun. Ef hreinsun hefur þegar farið fram eru eigendur vinsamlegast beðnir um að koma í áhaldahús og framvísa vottorði því til staðfestingar.
Dýralæknir verður í Fjallabyggð sem hér segir: [meira..]
Lesa meira
20.10.2023
Aðalfundur Vélsleðafélags Ólafsfjarðar verður haldinn föstudaginn 3. nóvember 2023 kl. 20:00 í Vallarhúsinu (ÚíF)á Ólafsfirði.
Lesa meira
20.10.2023
Undur og stórmerki: Náttúrulögmálin
Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur verður í Alþýðuhúsinu á Siglufirði sunnudaginn 29. október kl. 20:00. Auk þess að lesa upp mun Eiríkur ræða við lesendur, áhorfendur og áheyrendur um sögusviðið, trú og hjátrú, ástina og svikult eðlið, náttúru manna, fjalla og hafs, og allra handa hamfarir – og hugsanlega jafnvel sýna myndir! Þá verður bókin til sölu og áritunarpenninn á lofti.
Lesa meira
19.10.2023
Tillaga að deiliskipulagi suðurbæjar Siglufjarðar
Lesa meira
18.10.2023
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2023.
Lesa meira
18.10.2023
Hjúkrunarheimilið Hornbrekka auglýsir eftir starfsmanni í býtibúr.
Lesa meira