Fréttir & tilkynningar

Gámar fyrir garðaúrgang

Nú er hægt að henda garðaúrgangi í gáma sem staðsettir hafa verið fyrir utan gamasvæðin. Ítrekað skal að einungis má losa garðaúrgang í gámana.
Lesa meira

Sjávarútvegsskólinn í Fjallabyggð

Nýliðna viku var Sjávarútvegsskólinn haldinn í Fjallabyggð fyrir yngsta árgang nemenda í vinnuskólanum. Alls mættu 15 krakkar á námskeiðið frá Vinnuskóla Fjallabyggðar. Voru þau bæði frá Siglufirði og Ólafsfirði. Kennarar voru þau; María Dís Ólafsdóttir og Magnús Víðisson. Á meðan á Sjávarútvegsskólanum stóð héldu krakkarnir laununum sínum í vinnuskólanum.
Lesa meira

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði 3. - 7. júlí

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði verður haldin í 20. skiptið dagana 3. til 7. júlí 2019 og ber hún yfirskriftina Ást og uppreisn.
Lesa meira

Gróska í starfi grunnskólans - góður árangur eftir skólaárið

Nú er 9. skólaári Grunnskóla Fjallabyggðar lokið. Óhætt er að segja að breytingar hafi einkennt þennan vetur eins og marga aðra á undan. Síðastliðið haust var ákveðið að fara í samstarf við ráðgjafafyrirtækið Tröppu ehf. um verkefnið Framúrskarandi skóli og er markmiðið að taka upp sýn og stefnu skólans sem er jafngömul skólanum.
Lesa meira

Íbúar Fjallabyggðar athugið

Garðaúrgangur er ekki fjarlægður við lóðamörk en íbúum er bent á að hægt er að fara með hann í urðun við Selgil á Siglufirði og í gömlu grjótnámuna fyrir ofan Hlíðarveg í Ólafsfirði. Einnig eru gámar á sorpmóttökustöðvum fyrir garðaúrgang. Vinsamlegast fjarlægið allt plast við losun á urðunarsvæðum. Tæknideild Fjallabyggðar.
Lesa meira

Þjóðhátíðardeginum 17. júní fagnað í Fjallabyggð

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní var mikið um að vera í Fjallabyggða þar sem í boði var fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Lesa meira

Lýðveldiskaka á Þjóðhátíðardaginn í Fjallabyggð

Í ár heldur Lýðveldið Ísland upp á 75 ára afmæli. Af því tilefni verður íbúum og gestum í Fjallabyggð boðið upp á Lýðveldisköku 17. júní við Þjóðlagasetur sr. Bjarna um kl. 12:00 og við Tjarnarborg kl. 15:00. Lýðveldiskakan er í boði Landssambands bakarameistara og forsætisráðuneytisins og bökuð af Aðalbakaríinu á Siglufirði.
Lesa meira

Kaffi Klara Ólafsfirði nýr aðili að Res Artis

Nýr kafli í starfsemi Kaffi Klöru Ólafsfirði hófst í dag þegar Kaffi Klara varð formlega aðili að Res Artis.
Lesa meira

Tilkynningu til íbúa um rétta flokkun - Græna tunnan - öryggi starfsfólks

Ábending frá Íslenska gámafélaginu! tilkynningu til íbúa um rétta flokkun.
Lesa meira

Fundur heilbrigðisráðherra í Hofi á Akureyri á morgun, 12. júní

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Þetta eru mikilvæg tímamót fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að kynna heilbrigðisstefnuna í öllum heilbrigðisumdæmum landsins og verður fyrsti fundurinn haldinn í Hofi á Akureyri 12. júní næstkomandi kl. 17 – 19.
Lesa meira