Fréttir & tilkynningar

Opið í ræktina og pottinn

Opið er í dag í ræktina, sturtur og heita pottinn á Siglufirði, en ekki alveg lokað eins og var áður auglýst. Einnig er stefnt að því að opna sundlaugina sjálfa á laugardaginn.
Lesa meira

Frítt í golf á Skeggjabrekkuvelli

Í tilefni af 40 ára afmæli Golfklúbbs Ólafsfjarðar verður heimamönnum boðið frítt í golf á Skeggjabrekkuvelli Ólafsfirði, vikuna 30. júní -6. júlí.
Lesa meira

Sigurbjörn Íslandsmeistari karla 35 ára og eldri

Kylfingurinn Sigurbjörn Þorgeirsson úr GÓ varð í kvöld Íslandsmeistari karla 35 ára og eldri þriðja árið í röð, en mótið fór fram á Kiðjabergsvelli. Hann hafði mikla yfirburði í karlaflokki, lék á samtals 216 höggum og var 14 höggum á undan Inga Rúnari Gíslasyni úr GKj, sem varð annar
Lesa meira

Lokun í Sundhöll Siglufjarðar

Sundhöll Siglufjarðar verður lokuð vegna viðhalds dagana 28. 29. og 30. júní nk. Tæknideild Fjallabyggðar
Lesa meira

Umfjöllun um blúshátíð í Svæðisútvarpi Norðurlands

Í svæðisútvarpi RÚV í dag verður viðtal við Gísla Rúnar Gylfason, formann Jassklúbbs Ólafsfjarðar og Kormák Bragason, einn stofnenda klúbbsins vegna Blúshátíðarinnar sem haldin verður í Ólafsfirði um helgina. Kormákur mun einnig spila lag eða tvö í útsendingunni. Áhugi fjölmiðla á hátíðinni hefur farið vaxandi undanfarna daga, enda er hér um skemmtilegan og merkilegan viðburð að ræða.
Lesa meira

Ljósmyndarar á ferð

Ráðin hefur verið ljósmyndari til að taka myndir af viðburðum sumarsins auk mynda af umhverfi og mannlífi Fjallabyggðar. Eins og margir vita hefur okkur vantað myndir til að nýta í auglýsingar, tímarit og á heimsíðu.
Lesa meira

Póstkort til vina og ættingja

Eins og margir íbúar Fjallabyggðar hafa eflaust orðið varir við fylgdu með síðustu Tunnu tvö póstkort.  Á póstkortunum er m.a. að finna viðburðardagskrá Fjallabyggðar í sumar.
Lesa meira

Ný heimasíða Bandývinafélags Ólafsfjarðar

Heimasíða Bandývinafélags Ólafsfjarðar sem Fjallabyggð færði félaginu að „gjöf“ er nú komin upp. Enn sem komið er bara síðasta mót komið inn en það stendur til bóta, innan stutts tíma verður öllum mótum gerð skil á síðunni í myndum og máli.
Lesa meira

Byggðakvótaúthlutun loksins hafin á Siglufirði

Síðastliðinn þriðjudag birti fiskistofa nýtt yfirlit yfir stöðu úthlutunar byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2006-2007 samkvæmt reglugerð nr. 439/2007 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2006/2007.  
Lesa meira

Stofnanir merktar

Fyrr á árinu var tekin sú ákvörðun að merkja allar stofnanir Fjallabyggðar með eins merkingum. Á næstu dögum munu starfsmenn áhaldahúss byrja á að koma þessum merkingum fyrir. Merkingar þessar verða hinar glæsilegustu og eru góð byrjun á að gera umhverfi Fjallabyggðar snyrtilegra.
Lesa meira