Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar

Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar boðar til aðalfundar miðvikudaginn 18. maí 2016 kl. 20:00 (athugið breyttan tíma).skólahúsinu í Ólafsfirði.

Stjórnarmenn gefa áfram kost á sér. Þeir eru Hugborg Inga Harðardóttir formaður, Rut Viðarsdóttir gjaldkeri, Björk Óladóttir, Diljá Helgadóttir, Katrín Freysdóttir og Guðrún Þorvaldsdóttir. Sjöundi stjórnarmaðurinn fundinn en það er Telma Björk Birkisdóttir.

Fundarefni:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Kosning formanns foreldrafélagsins og annarra stjórnarmanna
5. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
6. Skýrsla fulltrúa foreldra í skólaráði
7. Kosning fulltrúa í skólaráð samkvæmt starfsreglum félagsins
8. Önnur mál


Vonumst til að sjá ykkur sem flest á aðalfundinum.


Fyrir hönd stjórnar Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar

Hugborg Inga Harðardóttir
formaður.