Fundargerðin er í 12 liðum og er tekin fyrir í heild sinni að undanskildum liðum 1, 2 og 3 sem bornir eru upp sérstaklega.
Samþykkt
.1
2505032
Gránugata 13B - Óveruleg breyting á deiliskipulagi
Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 326. fundur - 17. september 2025.
Formaður víkur af fundi við afgreiðslu málsins.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt og sent til Skipulagsstofnunar í samræmi við 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun fundar
Arnar Þór Stefánsson víkur af fundi við afgreiðslu þessa liðar.
Bæjarstjórn staðfestir tillögu nefndarinnar um óverulegar breytingar á deiliskipulagi hafnasvæðis Siglufjarðar með 6 atkvæðum.
.2
2509033
Fljótagöng - breyting á aðalskipulagi
Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 326. fundur - 17. september 2025.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði kynnt í samræmi við 2.mgr. 30.gr. skipulagslaga.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum tillögu nefndarinnar um að tillaga um breytingu á aðalskipulagi vegna Fljótaganga verði kynnt í samræmi við skipulagslög.
.3
2509034
Fljótagöng - breyting á deiliskipulagi
Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 326. fundur - 17. september 2025.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði kynnt í samræmi við 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum tillögu nefndarinnar um að tillaga um breytingu á deiliskipulagi vegna Fljótaganga verði kynnt í samræmi við skipulagslög.