Verksamningur um ræstingu fyrir Leikskóla Fjallabyggðar, Leikskála 2025-2028

Málsnúmer 2501063

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 862. fundur - 06.02.2025

Á 861. fundi sínum samþykkti bæjarráð tillögu deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála um að tilboði Kristalhreint ehf. í ræstingar fyrir Leikskóla Fjallabyggðar, Leikskála, verði tekið og gerður verði þriggja ára samningur með möguleika á framlengingu til eins árs að hámarki tvisvar.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu drög að verksamningi við Kristalhreint ehf., sem lagður er fram til staðfestingar.
Samþykkt
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við kynnt drög að samningi og felur bæjarstjóra að undirrita fyrir hönd sveitarfélagsins.