Ósk um styrk vegna foreldrafræðslu um slysavarnir ungra barna.

Málsnúmer 2501060

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 862. fundur - 06.02.2025

Fyrir liggur erindi frá Herdísi L. Storgaard f.h. Miðstöðvar slysavarna barna þar sem óskað er eftir 50 þúsund króna styrk til gerðar myndbands með námskeiði um slysavarnir ungra barna á heimilum. Slík námskeið hafa verið í boði fyrir foreldra á höfuðborgarsvæðinu en með myndbandinu er ætlað að ná jafnframt til foreldra á landsbyggðinni.
Samþykkt
Bæjarráð fagnar framtakinu og samþykkir styrk að upphæð kr. 50.000 í verkefnið.