Uppsögn ræstisamnings í Leikskóla Fjallabyggðar, Leikhólum Ólafsfirði

Málsnúmer 2402001

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 820. fundur - 09.02.2024

Kristalhreint ehf., verktaki sem sér um ræstingar í Leikskóla Fjallabyggðar Leikhólum, hefur sagt upp samningi frá og með 1. febrúar sl.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að kanna möguleika á tímabundinni framlengingu við núverandi samningsaðila eða efna til verðkönnunar á ræstingu í Leikhólum þar sem til stendur að skoða fýsileika stærra útboðs á vegum stofnana sveitarfélagsins.