Bæjarráð Fjallabyggðar - 818. fundur - 26. janúar 2024.

Málsnúmer 2401006F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 239. fundur - 22.02.2024

Fundargerð bæjarráðs er í 9 liðum.
Til afgreiðslu eru liðir 4, 6 og 7.
Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.
Enginn tók til máls.
  • .4 2401072 Tímabundinn samningur um rekstur gámasvæða í Fjallabyggð
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 818. fundur - 26. janúar 2024. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við drögin og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • .6 2311018 Golfskáli Skeggjabrekkudal
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 818. fundur - 26. janúar 2024. Bæjarráð samþykkir að veita GFB fjárframlag að fjárhæð kr. 10.000.000,- til þess að koma tímabundinni húsnæðisaðstöðu við Skeggjabrekkuvöll ásamt því að koma aðkomu- og bílastæðamálum í viðunandi horf. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • .7 2401016 Snjókross keppni í Ólafsfirði 2024
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 818. fundur - 26. janúar 2024. Bæjarráð heimilar fyrir sitt leyti notkun á kofunum í samræmi við reglur Fjallabyggðar. Þá heimilar bæjarráð einnig fyrir sitt leyti fyrirhugaða staðsetningu kofanna. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.