Styrkumsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2024

Málsnúmer 2310048

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 933. fundur - 17.09.2026

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða og Fjallabyggð gerðu samning árið 2024 um byggingu fuglaskoðunarskýlis á Leirutanga með fjárstyrk frá framkvæmdasjóðnum en ekki hefur orðið af framkvæmdum m.a. vegna skipulagsbreytinga á svæðinu. Áætlaður kostnaður við skýlið var ríflega 14 milljónir króna og styrkupphæð ríflega 11 milljónir króna. Fyrir liggur að framkvæmdasjóður er tilbúinn til þess að veita sömu styrkupphæð komist verkið á framkvæmdaáætlun ársins 2027.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2027 en hlutur sveitarfélagsins er áætlaður 2-3 milljónir.