Umsókn um byggingarleyfi - breytt notkun á rými 0201 og 0203, Aðalgötu 34

Málsnúmer 2307003

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 300. fundur - 05.07.2023

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi dagsett 3.7.2023 þar sem L-7 ehf. sækir um leyfi fyrir hönd Selvíkur ehf, á sameiningu rýma 0201 og 0203 á Aðalgötu 34 og breytta notkun úr skrifstofurýmum í íbúð. Einnig lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir ásamt skráningartöflu og samþykki annars eiganda í húsinu.
Samþykkt
Erindi samþykkt.