Tilkynningarskyld framkvæmd - Eyrarflöt 6-8 Siglufirði

Málsnúmer 2306061

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 300. fundur - 05.07.2023

Með erindi dagsettu 27.júní 2023 óska L-7 verktakar fyrir hönd eigenda á Eyrarflöt 6-8 Siglufirði, eftir leyfi til minniháttar útlitsbreytinga á sólskála sem snýr til vesturs. Breytingarnar felast í uppsetningu liggjandi timburklæðningar á neðri gluggaröð sólskálanna þar sem rúður brotna ítrekað vegna snjóalaga og klakamyndunar.
Samþykkt
Erindi samþykkt.