Samningur milli Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar um samráð og samstarf um félagslega þjónustu

Málsnúmer 2211134

Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 146. fundur - 17.05.2023

Farið yfir markmið og hlutverk samnings milli Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar um samráð og samstarf um félagslega þjónustu, sem staðfestur var í bæjarstjórn Fjallabyggðar þann 25. maí 2022. Í umræðum um málið voru viðraðar hugmyndir um sameiginlegan fund félagsmálanefndar Fjallabyggðar og félagsmálaráðs Dalvíkurbyggðar í þeim tilgangi að ræða tilgang og markmið samningsins. Deildarstjóra félagsmáladeildar falið að vinna að frekari undirbúningi.