Umsókn um samstarf og stuðning vegna undirbúnings á verkefni um nærandi ferðaþjónustu í Fjallabyggð

Málsnúmer 2211072

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 769. fundur - 24.11.2022

Lagt fram erindi Ólafar Ýrr Atladóttur um samstarf og stuðning vegna undirbúnings á verkefni um nærandi ferðaþjónustu í Fjallabyggð.
Afgreiðslu frestað
Óskað er eftir fundi með Ólöfu um verkefnið.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 771. fundur - 06.12.2022

Ólöf Ýrr Atladóttir mætti á fund bæjarráðs í gegnum fjarfundabúnað. Ólöf hélt erindi undir þessum dagskrárlið um verkefni tengt nærandi ferðaþjónustu í Fjallabyggð.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar Ólöfu Ýrr fyrir greinargóða kynningu á verkefninu. Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 500.000 á árinu 2023. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leiða verkefnið fyrir hönd sveitarfélagsins.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 812. fundur - 24.11.2023

Fyrir liggja gögn um framvindu verkefnis um stefnumótunar- og þróunarverkefni um nærandi ferðaþjónustu. Verkefnið hlaut styrk á árinu 2023.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar fyrir samantekt vegna verkefnisins og óskar eftir því að forsvarsfólk verkefnisins komi inn á næsta fund bæjarráðs og kynni framvindu verkefnisins nánar.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 815. fundur - 20.12.2023

Ólöf Ýrr Atladóttir mætti til fundarins og fór yfir verkefnið "Nærandi ferðaþjónusta í Fjallabyggð."
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar Ólöfu Ýrr fyrir yfirferðina og komuna á fundinn.