Samningur um afnot af Tjarnarborg v. uppsetningu leiksýningar 2022

Málsnúmer 2209059

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 762. fundur - 10.10.2022

Leikfélag Fjallabyggðar hefur hafið æfingar á nýju leikverki undir nafninu Birgitta kveður eftir Guðmund Ólafsson. Erindi hefur borist frá félaginu um stuðning Fjallabyggðar í formi afnota af Tjarnarborg til æfinga leikverksins. Áætlaðar eru 7 sýningar á leikverkinu og frumsýning 28. október nk.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að veita Leikfélagi Fjallabyggðar afnot af Tjarnarborg vegna æfinga. Deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála falið að annast samskipti og útfærslu í samráði við leikfélagið.