Umsókn um byggingarleyfi - Hafnartún 8 Siglufirði

Málsnúmer 2209042

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 289. fundur - 05.10.2022

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi dagsett 22.9.2022 þar sem Haraldur Marteinsson sækir um leyfi fyrir skýli yfir sólpall í samræmi við meðfylgjandi teikningar. Einnig lagt fram samþykki nágranna í Hafnartúni 10.
Samþykkt
Erindi samþykkt með fyrirvara um að fullnægjandi gögn berist.