Umsókn um byggingarleyfi - Tjarnargata 6 Siglufirði

Málsnúmer 2209030

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 289. fundur - 05.10.2022

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi dagsett 1.9.2022 þar sem Kári Magnússon sækir um fyrir hönd Olís ehf., leyfi fyrir viðbyggingu í norður í samræmi við meðfylgjandi teikningar frá AVH ehf. dagsettar 31.8.2022.
Samþykkt
Viðbyggingin er innan byggingarreits og í samræmi við gildandi deiliskipulag. Erindi samþykkt með fyrirvara um að fullnægjandi gögn berist.