Erindi sent fyrir hönd Skipulagsdeildar Vegagerðarinnar

Málsnúmer 2207019

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 752. fundur - 18.07.2022

Lagt fram til kynningar erindi frá Ernu Báru Hreinsdóttur f.h. Vegagerðarinnar dags. 12. júlí 2022 þar sem Vegagerðin vill minna á mikilvægi samráðs á skipulagsstigi vegna samgangna.

Einnig er bent á leiðbeiningar sem heita Vegir og Skipulag og er að finna á heimasíðu Vegagerðarinnar.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar Vegagerðinni erindið og felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með Vegagerðinni í haust.