Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað

Málsnúmer 2207014

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 750. fundur - 11.07.2022

Lögð fram umsagnarbeiðni, dagsett 7. júlí 2022, þar sem Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn Fjallabyggðar í kjölfar umsóknar Sunnu ehf. um leyfi til sölu áfengis (sala á áfengi sem er að rúmmáli minna 12% af hreinum vínanda) á framleiðslustað að Vetrarbraut 8-10.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fyrirvara um að efnisatriði umsóknar séu uppfyllt og vísar henni til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.