Ráðning í stöðu deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála

Málsnúmer 2206050

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 747. fundur - 21.06.2022

Staða deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála hjá Fjallabyggð var auglýst til umsóknar þann 06.05.2022. Alls bárust fjórar umsóknir um starfið. Tekin voru viðtöl við þrjá umsækjendur. Mögnum ráðningar sáu um ráðningarferlið og fyrir liggur greinargerð ráðgjafa þar sem lagt er til að Bragi Freyr Kristbjörnsson verði ráðinn í stöðuna.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að ráða Braga Frey Kristbjörnsson í starf deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála hjá Fjallabyggð.