Lækkun álagningarprósentu fasteignaskatts í Fjallabyggð.

Málsnúmer 2206005

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 744. fundur - 07.06.2022

Lagt fram erindi frá Sigurlínu Káradóttir vegna verulegra hækkana á fasteignamati í Fjallabyggð þar sem óskað er eftir því að brugðist verði við þessum hækkunum með því að lækka verulega álagningarprósentu fasteignaskatts.
Bæjarráð þakkar Sigurlínu framkomið erindi. Álagningarprósenta ásamt öðrum gjöldum verður tekin til umræðu og afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar 2023.