Bæjarráð Fjallabyggðar - 742. fundur - 12. maí 2022.

Málsnúmer 2205003F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 215. fundur - 25.05.2022

Fundargerð bæjarráðs er í 15 liðum.

Til afgreiðslu eru liðir 2, 4 og 5.

Aðrir liðir þarnfast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.

Enginn tók til máls.
  • .2 2205026 Samningar um rekstur tjaldsvæða í Fjallabyggð 2022-2024
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 742. fundur - 12. maí 2022. Bæjarráð samþykkir framlögð drög að samningum og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að undirrita þá fyrir hönd sveitarfélagsins. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • .4 2205041 Slökkvilið Fjallabyggðar - bifreiðakaup
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 742. fundur - 12. maí 2022. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu deildarstjóra tæknideildar og felur deildarstjóra fjármála að vinna viðauka í samræmi við framlögð gögn og leggja fyrir bæjarstjórn. Bókun fundar Undir þessum lið víkur Tómas Atli Einarsson af fundi.

    Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • .5 2204056 Umferðaröryggi við leikskóla Fjallabyggðar
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 742. fundur - 12. maí 2022. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Bás ehf. í verkin Umferðaröryggi við leikskóla Fjallabyggðar 1 og 2 og felur bæjarstjóra að undirrita verksamninga vegna verkana fyrir hönd sveitarfélagsins. Bókun fundar Undir þessum lið véku Tómas Atli Einarsson og Guðrún Linda Rafnsdóttir af fundi.

    Bæjarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.