Takmarkanir á komum Rússneskra skipa til íslenskra hafna

Málsnúmer 2204055

Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 128. fundur - 09.05.2022

Lögð fram til kynningar gögn, tölvupóstar og fylgiskjöl, er varða bann við aðgangi skipa sem sigla undir Rússneskum fána að höfnum Íslands, sbr. reglugerð 532/2022 um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu með síðari breytingum, dags. 6. maí 2022 sem innleiðir reglugerð ráðsins (ESB) nr. 2022/576. Vísað er til framangreindrar reglugerðar um bannið.