Ábending íbúa vegna umferðaröryggis á Hverfisgötu.

Málsnúmer 2203043

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 283. fundur - 06.04.2022

Lögð fram ábending, dags 16. mars 2022, þar sem Salóme Rut Kjartansdóttir bendir á að umferðaröryggi sé ábótavant á horni Hverfisgötu og Kirkjugarðsvegar á Siglufirði.
Tæknideild falið að leita lausna til að bæta umferðaröryggi á umræddum gatnamótum.