Skíðagöngunámskeið í boði Fjallabyggðar og skíðafélaga í Fjallabyggð

Málsnúmer 2202022

Vakta málsnúmer

Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 21. fundur - 10.02.2022

Stýrihópur um heilsueflandi samfélag, Skíðafélag Ólafsfjarðar og Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg buðu íbúum upp á skíðagöngunámskeið í báðum byggðarkjörnum. Báðum námskeiðunum er nú lokið og var þátttakan mjög góð. Um 60 manns tóku þátt í námskeiðunum. Námskeiðin tókust mjög vel og ekki hægt að heyra annað en að almenn ánægja ríki meðal þátttakenda. Stýrihópurinn vill færa skíðafélögunum sínar bestu þakkir fyrir samstarfið og vonar að þátttakendur haldi áfram að iðka skíðagöngu með félögunum.