Samstarfssamningur um rekstur golfvallarins Skeggjabrekku árið 2022

Málsnúmer 2201053

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 729. fundur - 10.02.2022

Lögð fram drög að samstarfssamningi við Golfklúbb Fjallabyggðar um rekstur golfvallarins Skeggjabrekku árið 2022.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir framlögð drög og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins og birta á heimasíðu sveitarfélagsins.