Gangamót Greifans - Hjólreiðahátíð á Akureyri 2021.

Málsnúmer 2106045

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 701. fundur - 22.06.2021

Lagt er fram erindi Hjólreiðafélags Akureyrar dags. 14. júní 2021, í erindinu er óskað eftir formlegu samþykki Fjallabyggðar fyrir því að mótið verði haldið. Sömuleiðis er óskað eftir upplýsingum um hvort fyrirhugaðar séu framkvæmdir innan sveitarfélagsins á fyrirhugaðri hjólaleið, fram að mótsdegi eða á mótsdeginum sjálfum. Þá er einnig óskað eftir því að sveitarfélagið aðstoði við að koma upplýsingum um mótið til sinna íbúa, með þeim miðlum sem í boði eru. Að síðustu er óskað eftir því að sveitarfélagið aðstoði við að útvega búnað sem gæti þurft til að setja upp í tengslum við umferðarstýringu, keilur, borðar, aðvörunar- og hjáleiðaskilti og fleira í þeim dúr.
Samþykkt
Bæjarráð tekur vel í erindið og samþykkir að fela deildarstjóra tæknideildar og markaðs- og menningarfulltrúa að vinna málið áfram.