Fyrirspurn vegna stækkunar húss fiskmarkaðs á Hafnarbryggju og færslu á löndunarkrönum

Málsnúmer 2106033

Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 121. fundur - 01.07.2021

Lagt er fram erindi Ragnars H Kristjánssonar f.h. FMS dags. 9. júní 2021. Í erindinu er óskað viðhorfa hafnarstjórnar gagnvart hugmynd um stækkun húss fiskmarkaðarins, einnig er þess óskað að löndunarkranar verði færðir á nýjan viðlegukant við hús fiskmarkaðarins.
Staðfest
Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og telur að það geti verið til bóta að færa krana nær fiskmarkaði. Hafnarstjóra falið að vinna málið áfram í samhengi við aðra umræðu sem hefur verið um langtímastefnumótun hafnarsvæðisins á Siglufirði.