Staðfesting landamerkja frístundalóðar úr landi Ósbrekku

Málsnúmer 2105049

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 269. fundur - 02.06.2021

Lagt fram erindi Ásdísar Gunnlaugsdóttur og Bryngeirs Kristinssonar þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á landamerkjum frístundalóðar úr landi Ósbrekku skv. hnitsettum uppdrætti, einnig að lóðin sem í dag er skráð á þrjú landnúmer verði sameinuð í eitt landnúmer undir nafninu Ósbrekka 2.
Erindi samþykkt.