Umsókn um byggingarleyfi-Hlíðarvegur 40 í Ólafsfirði

Málsnúmer 2104019

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 268. fundur - 05.05.2021

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi dagsett 7. apríl 2021 þar sem Gylfi Ragnarsson sækir um leyfi til að rífa núverandi þak og byggja nýtt mænisþak. Einnig lagðir fram aðaluppdrættir og burðarþolsteikningar frá Eflu, hannað af Árna Gunnari Kristjánssyni. Samþykki nágranna við Hlíðarveg 38, 39, 41 og 43 liggur fyrir.
Samþykkt
Erindi samþykkt.