Fyrirspurn vegna byggingar bílskýlis að Hvanneyrarbraut 69

Málsnúmer 2104018

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 268. fundur - 05.05.2021

Lögð fram fyrirspurn frá Jóni Hrólfi Baldurssyni vegna fyrirhugaðrar byggingar bílskýlis við hús hans við Hvanneyrarbraut 69. Til stendur að byggja opið bílskýli til austurs að lóðarmörkum yfir bílaplan og er óskað eftir afstöðu nefndarinnar áður en ráðist er í fullnaðar hönnun og teikningar. Einnig lagðar fram undirskriftir nágranna sem setja sig ekki á móti framkvæmdinni.
Erindi svarað
Nefndin tekur jákvætt í erindið.