Umsókn um byggingarleyfi og breytingu á lóðamörkum Hlíðarveg 38 í Ólafsfirði

Málsnúmer 2104007

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 268. fundur - 05.05.2021

Lögð fyrir umsókn dagsett 4. apríl 2021 þar sem Ásgeir Logi Ásgeirsson og Kristín Brynhildur Davíðsdóttir sækja um leyfi til að byggja 15 fm geymsluskúr á milli húsanna við Hlíðarveg 38 og 40 skv. meðfylgjandi teikningum og ljósmyndum. Einnig er óskað eftir breytingum á lóðarmörkum í samræmi meðfylgjandi lóðarblað dagsett 16.4.2021, þar sem lóðin við Hlíðarveg 38 stækkar örlítið til norðurs. Samþykki eiganda Hlíðarvegar 40 liggur fyrir.
Samþykkt
Erindi samþykkt og tæknideild falið að útbúa nýja lóðarleigusamninga fyrir lóðirnar þar sem lóðarbreytingarnar koma fram.