Umsókn um leyfi fyrir gróðurhúsi - Lækjargata 6c Siglufirði

Málsnúmer 2103080

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 266. fundur - 07.04.2021

Lögð fram umsókn Hálfdáns Sveinssonar f.h. Siglunes Guesthouse ehf. dagsett 16. mars 2021 þar sem sótt er um leyfi til að reisa 14 fm gróðurhús á lóðinni Lækjargötu 6c sem Siglunes Guesthouse fékk úthlutað 15. október sl. Gróðurhúsið verður ekki upplýst og verður staðsett í norðaustur horni lóðarinnar, 3m frá lóðarmörkum.
Erindi samþykkt.