Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 130. fundar - 12. mars 2021.

Málsnúmer 2103005F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 199. fundur - 17.03.2021

  • .1 2103009 Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög.
    Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 130. fundur - 12. mars 2021. Erindi frá Jafnréttisstofu um áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög. Alþingi hefur samþykkt tvenn ný lög sem leysa af hólmi lög nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Nýju lögin eru: Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og Lög um um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020. Áætlanir sveitarfélaga í jafnréttismálum skulu nú taka til markmiða og aðgerða til að koma í veg fyrir mismunun, ekki eingöngu vegna kyns, heldur óháð kynþætti og þjóðernisuppruna og óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu. Jafnréttisstofa hvetur sveitarfélög til að nýta vel þann tíma sem er fram til sveitarstjórnakosninga vorið 2022 til að undirbúa gerð nýrra áætlana í jafnréttismálum. Bókun fundar Afgreiðsla 130. fundar félagsmálanefndar staðfest á 199. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
  • .2 2010088 Samstarfssamningur vegna Húss eldri borgara í Ólafsfirði
    Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 130. fundur - 12. mars 2021. Lögð fram til kynningar drög að samningi um afnot félagsþjónustu Fjallabyggðar af Húsi eldri borgara í Ólafsfirði sem og breytingatillaga Félags eldri borgara við drögin. Málið er í áframhaldandi vinnslu. Bókun fundar Tll máls tóku Helgi Jóhannsson og Elías Pétursson.

    Afgreiðsla 130. fundar félagsmálanefndar staðfest á 199. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
  • .3 1802077 Trúnaðarmál, félagsleg þjónusta
    Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 130. fundur - 12. mars 2021. Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 130. fundar félagsmálanefndar staðfest á 199. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
  • .4 2002003 Trúnaðarmál, fjárhagsaðstoð
    Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 130. fundur - 12. mars 2021. Bókun fundar Afgreiðsla 130. fundar félagsmálanefndar staðfest á 199. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
  • .5 2012028 Teymi um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19
    Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 130. fundur - 12. mars 2021. Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 130. fundar félagsmálanefndar staðfest á 199. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.