Umsókn um byggingarleyfi - útlitsbreyting að Lindargötu 6b Siglufirði

Málsnúmer 2103002

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 266. fundur - 07.04.2021

Byggingafélagið Berg ehf. sækir um fyrir hönd Margrétar Einarsdóttur að setja hurð í stað glugga á suðurhlið Lindargötu 6b skv. meðfylgjandi mynd, einnig gera sólpall sunnan við húsið ca. 4,50 x breiddin á húsinu.
Erindi samþykkt.