Tryggjum lýðræðislega þátttöku - Gátlisti við skipulagningu viðburða

Málsnúmer 2101071

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 682. fundur - 02.02.2021

Lagt fram til kynningar erindi Jafnréttisstofu, dags 26.01.2021 þar sem fram kemur að Jafnréttisstofa hefur gefið út bæklinginn: Tryggjum lýðræðislega þátttöku - Gátlisti við skipulagningu viðburða. Um er að ræða handhægan rafrænan bækling þar sem farið er yfir atriði sem hafa ber í huga þegar skipuleggja á viðburð sem hefur lýðræði og fjölbreytileika að leiðarljósi.