Ósk um leyfi til uppsetningar á veðurstöð við Saurbæjarás

Málsnúmer 2011020

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 261. fundur - 19.11.2020

Með bréfi dagsettu 12. nóvember 2020 óskar Margét Silja Þorkelsdóttir fyrir hönd Vegagerðarinnar eftir leyfi til uppsetningar á veðurstöð norðan Siglufjarðarvegar við Saurbæjarás.
Meðfylgjandi er uppdráttur sem sýnir fyrirhugaða staðsetningu.
Erindi samþykkt.