Skemmdir á hleðslum við lóðamörk í Aðalgötu í Ólafsfirði

Málsnúmer 2009066

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 259. fundur - 14.10.2020

Með tölvupósti, dagsettum 28. september 2020, ítreka þau Anton Konráðsson, Greta Ólafsdóttir, Rögnvaldur Ingólfsson og G. Jörgína Ólafsdóttir fyrri ábendingu um að skemmdir sem urðu á hleðslum við lóðamörk þeirra við snjómaokstur verði lagfærðar. Meðfylgjandi eru myndir af skemmdunum.
Nefndin þakkar ábendinguna og felur tæknideild að biðja snjómokstursverktaka að lagfæra umræddar skemmdir.