Haustfundur ferðaþjónustu, menningar og afþreyingar í Fjallabyggð 2020

Málsnúmer 2008052

Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 67. fundur - 02.09.2020

Undanfarin ár hefur verið haldinn haustfundur með ferðaþjónustu-, menningar- og afþreyingaraðilum í Fjallabyggð. Markaðs- og menningarnefnd stefnir að því að halda lokaðan fund með áðurtöldum hagsmunaaðilum undir lok september nk. Fundarboð verður sent út á næstu dögum.