50 ára afmæli Golfklúbbs Siglufjarðar - styrkumsókn

Málsnúmer 2005047

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 652. fundur - 19.05.2020

Lagt fram erindi Jóhanns Más Sigurbjörnssonar fh. Golfklúbbs Siglufjarðar (GKS), dags. 12.05.2020 þar sem fram kemur að félagið á 50 ára afmæli á árinu. Af því tilefni hyggst klúbburinn standa fyrir kynningarstarfsemi, nýliðakennslu, láta endurhanna merki félagsins og útbúa félagsfána. Þá stendur til að halda opið golfmót á Siglógolf vellinum 18. júní nk. þar sem áætlað er að þátttakendur verði á milli 70-80 talsins en þar sem um afmælismót er að ræða er ekki gert ráð fyrir tekjum. Óskar klúbburinn eftir fjárstyrk frá sveitarfélaginu svo að unnt verði að standa straum af því sem ætlað er að gera á afmælisárinu og til að halda fyrirhugað golfmót.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að funda með forsvarsmönnum GKS og veita umsögn um erindið.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 655. fundur - 10.06.2020

Á 652. fundi bæjarráðs óskaði ráðið eftir því við deildarstjóra fræðslu,- frístunda- og menningarmála að funda með forsvarsmönnum Golfklúbbs Siglufjarðar og veita umsögn vegna erindis Jóhanns Más Sigurbjörnssonar fh. Golfklúbbs Siglufjarðar (GKS) þar sem óskað var eftir fjárstyrk frá sveitarfélaginu til þess að standa straum af viðburðum tengdum 50 ára afmæli klúbbsins á árinu.

Lögð fram umsögn deildarstjóra fræðslu,- frístunda- og menningarmála dags. 03.06.2020.

Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Siglufjarðar styrk vegna 50 ára afmælis klúbbsins kr. 220.000 sem ætlað er að mæta kostnaði vegna fyrirhugaðs námskeiðs klúbbsins fyrir börn og unglinga og minjagripa. Kostnaður verður bókaður á lið 06810-9291 og rúmast innan gildandi fjárhagsáætlunar 2020.