Bréf til bæjarráðs vegna Uppl.miðstöð

Málsnúmer 2005013

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 651. fundur - 14.05.2020

Lagt fram erindi Fjallasala ses., dags. 05.05.2020 þar sem óskað er eftir að upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn í Ólafsfirði verði flutt úr bókasafninu í Pálshús. Áætlað er að hafa safnið opið allt árið um kring, einnig um helgar þannig að þjónusta upplýsingamiðstöðvar yrði aukin auk þess sem staðsetning Pálshúss er talin heppilegri en sú sem fyrir er.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála og markaðs- og menningarfulltrúa um hugsanlega kosti og galla þess að flytja upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn úr bóksasafninu í Pálshús.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 654. fundur - 04.06.2020

Á 651. fundi bæjarráðs óskaði ráðið eftir umsögn deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála vegna erindis Fjallasala ses. dags. 05.05.2020, þar sem óskað er eftir að upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn verði flutt úr bókasafninu í Pálshús.

Lögð fram umsögn deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála og markaðs- og menningarfulltrúa, dags. 26.05.2020.

Bæjarráð samþykkir að halda óbreyttu fyrirkomulagi og vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2021.