Staðfesting á útsvarshlutfalli við álagningu 2020 vegna tekna á árinu 2019

Málsnúmer 2004020

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 648. fundur - 21.04.2020

Lagt fram erindi frá Ríkisskattstjóra, dags. 02.04.2020 vegna útsvarshlutfalls við álagningu 2020, vegna tekna á árinu 2019. Óskað er eftir upplýsingum um endanlegt útsvarshlutfall en sveitarfélögum er heimilt að breyta áður ákvörðuðu útsvarshlutfalli.

Bæjarráð staðfestir að endanlegt útsvarshlutfall verði 14,48% líkt og samþykkt var í bæjarstjórn við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 og felur deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála að svara erindinu.